Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Nokkur orðaskipti urðu milli forseta og nokkurra þingmanna á síðasta fundi þegar hv. 10. þm. Reykv. gerði að umræðuefni minnispunkta frá skrifstofu EFTA í Genf um óformlegan og óundirbúinn rabbfund forseta þjóðþinga EFTA-landa í Strassborg sem forseti austurríska þingsins hafði frumkvæði að og boðaði til meðan við vorum þar stödd á ráðstefnu forseta þjóðþinga Evrópuríkja 20.--22. febr. sl. Að gefnu tilefni vill forseti taka eftirfarandi fram:
Þegar ég var innt skýringa á ummælum sem eftir mér voru höfð í þessum minnispunktum hafði ég ekki haft tækifæri til að líta yfir þá enda voru þeir þá nýkomnir í bréfi frá forseta austurríska þingsins. Ég hef nú lesið fundargerðina yfir og borið hana saman við minnispunkta sem ég hafði tekið saman á þeim stutta tíma sem var til stefnu og las á þessum óformlega fundi og kemur þá í ljós að fundagerðin er bæði röng og villandi þótt misskilningurinn sé reyndar auðrakinn. Ég sagði í þessu rabbi að ég teldi líklegt, ef unnt yrði að leggja EES-samninginn fram í maí og hefja umræður um hann, að þá þyrfti að koma til sumarfunda eða aukafunda Alþingis, hugsanlega í lotum, hugsanlega í 4--6 vikur, til þess að fjalla um og afgreiða sjálfan EES-samninginn.
Ég sagði í öðru lagi að þingið yrði að taka sér góðan tíma til að afgreiða lagabreytingar sem þyrftu að fylgja í kjölfar samningsins og notaði þá enska orðið ,,time-consuming`` um þann þátt málsins.
Ég benti loks í þriðja lagi á að 30. sept. falla öll óafgreidd þingmál niður samkvæmt þingsköpum og þau verður að endurflytja og byrja á byrjuninni 1. okt. er nýtt þing hefst. Þetta atriði yrðum við að hafa í huga. Í fundargerðinni er þessu hins vegar ruglað saman og haft eftir mér að Alþingi ætli sér að afgreiða 200 lagafrumvörp á 4--6 vikum. Slíkt er hrein firra og hafa þegar verið gerðar ráðstafanir til þess að fá þetta leiðrétt.
Forseti vill taka fram að gefnu þessu tilefni að að sjálfsögðu verður haft samráð við þingflokka um tilhögun þinghalds ef bregða þarf frá fyrirliggjandi starfsáætlun Alþingis. En sem stendur liggur ekkert fyrir og mikil óvissa um EES-málið vegna margvíslegra tafa eins og öllum hv. þm. er kunnugt.
Forseti harmar að þessi ranga og villandi fundargerð skyldi verða tilefni orðaskipta hér í þingsalnum og tilefni frétta í fjölmiðlum, eftir því sem forseta hefur verið tjáð, einkum vegna þess að unnt hefði verið að leiðrétta þennan misskilning ef málið hefði verið borið undir forseta fyrir fram og utan fundar. Þetta vildi forseti taka fram að þessu gefna tilefni.