Svavar Gestsson
:
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. forseta fyrir þessa afdráttarlausu yfirlýsingu. Hún er alveg skýr á þann veg að sú fundargerð sem hér var vakin athygli á í gær af hv. 10. þm. Reykv. er röng. Þar koma fram rangar upplýsingar um það sem hæstv. forseti hafði sagt á þessum umrædda fundi. Ég tel einnig að það hafi verið mjög æskilegt að hv. 10. þm. Reykv. tók þetta mál upp hér í þessum sal þannig að þjóðin og þingið fengi að vita hvernig þessi mál eru.
Ég held að við þurfum að gera okkur grein fyrir því að Alþingi afgreiðir yfirleitt á venjulegu þingi í mesta lagi 80--90 lagafrumvörp þannig að það er nokkurn veginn útilokað að Alþingi geti nema á alllöngum tíma afgreitt öll þau frumvörp sem hér um ræðir ef Ísland ákveður að gerast aðili að hinu Evrópska efnahagssvæði. Til þess þarf mjög marga mánuði og það er bersýnilegt með öðrum orðum að við þurfum alveg sérstök vinnubrögð í þessu efni. Ég tel að við þurfum að fara rækilega yfir það. Menn þurfa að velta því yfir sér hvernig að þessu verður staðið, hvort kosin verði sérstök nefnd til að fjalla um það og frumvörpin í heild og síðan fagnefndir eða hvernig að þessu verður yfir höfuð staðið. En það er bersýnilegt, ef af þessu verður, sem við skulum vona að verði ekki, að þá er gífurlegur annatími fram undan hjá Alþingi og það gæti farið svo að verulegur hluti sumarsins færi í þetta verk.
Ég fagna einnig þeirri yfirlýsingu forseta að hún lýsti því yfir að haft yrði samráð við formenn og forustumenn þingflokka og forseta þingsins að öðru leyti varðandi framgang og meðferð þessara mála.