Össur Skarphéðinsson
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Hv. þm. Steingrímur Jóhann Sigfússon kveðst ekki vera mjög bjartsýnn varðandi frammistöðu ríkisstjórnarinnar. Ég hef tekið eftir því að þingmaðurinn verður óskaplega daufur til augnanna þegar hann ræðir um ríkisstjórnina. En af því að við erum að tala um ríkisstjórnina og frammistöðu hennar í skipaiðnaði þá liggur fyrir að fyrir tilstilli þessarar ríkisstjórnar en ekki síðustu ríkisstjórnar, sem hv. þm. átti sæti í, er verið að gera þessar breytingar sem þingmaðurinn hefur sjálfur sagt hér rétt áðan að muni horfa til framfara íslenskra skipasmíðastöðva. Er það ekki líka rétt, hv. þm., að núv. iðnrh. hefur m.a. beitt sér fyrir því eins og aðrir aðilar innan ríkisstjórnarinnar að lánshlutfall til smíða skipa erlendis hefur verið lækkað? Er það ekki stuðningur við innlendan skipaiðnað? Ég spyr.