Ólafur Ragnar Grímsson
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Við skulum vona að það sem hv. þm. sagði hér áðan hafi verið það sem hv. þm. Björn Bjarnason var að hvísla að honum í salnum en hafi ekki komið frá eigin brjósti þingmannsins. Það er sérkennilegt ef á það er kallað að ég komi hér og biðjist afsökunar á fortíð Hannibals Valdimarssonar, svo ég byrji nú á fyrsta fyrirrennara mínum. Hv. þm. Karl Steinar Guðnason sagði að ég ætti að koma hér í stólinn og biðjast afsökunar á fortíð fyrirrennara minna. Enginn maður hefur verið fyrirrennari minn lengur sem formaður Alþb. en Hannibal Valdimarsson. Hann var sá fyrsti, frá 1956--1968. Hvað er það í fortíð Hannibals Valdimarssonar sem ég á að biðjast afsökunar á, hv. þm. Karl Steinar Guðnason? Hannibal Valdimarsson sem var fluttur í böndum frá Bolungarvík sem verkalýðsforingi. Hvenær hefur formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur verið fluttur í böndum vegna baráttu sinnar fyrir málstað launafólks? Hvað er það í fortíð Ragnars Arnalds sem ég á að biðjast afsökunar á frá árunum 1968--1975? Hvað er það í fortíð Lúðvíks Jósepssonar frá 1975--1980 sem ég á að biðjast afsökunar á? Hvað er það í fortíð Svavars Gestssonar frá 1980--1987 sem ég á að biðjast afsökunar á? Hvers konar dylgjur eru þetta hjá hv. þm.? Ef hann vill að við tökum mark á honum vill hann þá ekki byrja á þeim fyrsta sem var fyrirrennari minn, Hannibal Valdimarssyni, og halda svo áfram svo að við vitum um hvað umræðan snýst?