Ólafur Ragnar Grímsson
:
Virðulegi forseti. Hæstv. forsrh. sagði að kjarasamningarnir væru á viðkvæmu stigi. Hvers vegna eru kjarasamningarnir á viðkvæmu stigi? Jú, það er vegna þess að verkalýðshreyfingin hefur nú beðið í tvo sólarhringa eftir svörum frá hæstv. ríkisstjórn og engin svör fengið. Á laugardag biðu samningamenn eftir því að fá skýr svör. Á sunnudagsmorgun var langur fundur forseta ASÍ, formanns BSRB og formanns Kennarasambands Íslands með forsrh. og utanrrh. og þeir fengu þar engin svör. Þeim var sagt að þeir fengju skrifleg svör fyrir kvöldmat í gær. Þeir fengu þau ekki. Samningamenn launafólks biðu til kl. 10.30 í gærkvöldi eftir því að fá svar frá ríkisstjórninni. Þeir fengu það ekki heldur þá. Þeim var sagt að það kæmi fyrir hádegi í dag og ríkisstjórnin mundi halda fund fyrir hádegi í dag. Það hefur ekki heldur gerst. Vandinn er nefnilega sá að það er stefna ríkisstjórnarinnar sem kemur í veg fyrir að skynsamlegir kjarasamningar takist sem festi í sessi efnahagslegan stöðugleika og lága verðbólgu. Það er aðför ríkisstjórnarinnar að velferðarkerfinu í fjárlögunum og bandorminum hér á Alþingi sem er sú hindrun sem nú þarf að yfirstíga til að við getum fest í sessi 2--3% verðbólgu á Íslandi, efnahagslegan stöðugleika og vaxandi kaupmátt. Þess vegna, virðulegi forsrh., átt þú að átta þig á því að það er þín eigin ríkisstjórn sem nú er hindrunin fyrir því að hægt sé að gera þessa kjarasamninga. Það þýðir ekki að koma í fjölmiðla og segja við launafólk að á Alþingi hafi verið samþykkt lög sem komi í veg fyrir að ríkisstjórnin dragi þessar aðgerðir til baka.
Ég get staðfest það sem hv. þm. Steingrímur Hermannsson sagði áðan. Stjórnarandstöðuflokkarnir eru tilbúnir til að greiða fyrir því með fundahöldum hér á Alþingi að þegar í stað yrðu afgreidd þau lög og þær lagasetningar sem fælu í sér breytingar á stefnunni hvað snertir velferðarmálin, heilbrigðismálin og menntamálin, tryggingamálin og annað sem launafólk óskar eftir.

Gunnar Thoroddsen sagði eitt sinn þessa frægu setningu, hæstv. forsrh.: ,,Vilji er allt sem þarf.`` Hæstv. forsrh. Davíð Oddsson., þú skalt hugleiða þessi orð Gunnars Thoroddsens. Vilji er allt sem þarf.