Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. fjmrh. fyrir það að ætla að afla upplýsinga til að svara spurningu minni. Það kemur mér að vísu nokkuð á óvart að hæstv. ráðherra
og einnig hæstv. dómsmrh. sé ekki það kunnugt um málið að þeir geti staðfest það af eða á í þingsalnum. Varla hafa embættismenn ráðuneytanna gert slíkan kjarasamning við sýslumenn, jafnafdrifaríkt fordæmi og hér er um að ræða á mjög viðkvæmum tímum í kjaramálum landsmanna, án þess að leita formlegrar heimildar viðkomandi ráðherra í þeim efnum.
Það er rétt hjá hæstv. fjmrh. að frá gömlum tíma tíðkaðist kerfi sýslumannsembætta sem byggt var á gamalli arfleifð en allir voru sammála um að leggja það niður. Það var gert með víðtækum breytingum á dómstólakerfinu og réttarfarinu í landinu og við það verða sýslumenn auðvitað venjulegir opinberir starfsmenn. Innheimtustörf þeirra eru unnin í vinnutímanum á milli kl. 9 og 5 eins og hjá öðrum opinberum starfsmönnum. Þegar verið er að búa til nýtt launakerfi fyrir sýslumenn verður að ríkja innra samræmi eins og fyrir aðra opinbera starfsmenn. Mér er tjáð að hið nýja launakerfi sýslumanna sé byggt upp eins og launakerfi annarra opinberra starfsmanna. Sýslumenn séu með 170--180 þús. kr. í föst laun á mánuði, svo ég fari með það hér eftir minni, síðan komi föst yfirvinna þar ofan á sem að vísu er nokkuð tengd innheimtuárangrinum en þó sé hlaupið í þessu þannig að mánaðarlaunin fari aldrei undir 270--280 þús. kr. á mánuði, jafnvel hjá þeim sem standa sig svo illa í innheimtunni að spurning sé hvort þeir eigi að vera áfram í embætti. Þeir sem skili viðunandi árangri, 98--99%, séu komnir með 400 þús. kr. á mánuði.
Ég vona að hæstv. fjmrh. kynni sér þetta rækilega og hæstv. ríkisstjórn sé þá reiðubúin til að draga þessa ákvörðun til baka vegna þess að ég held að launafólk í landinu eigi erfitt með að skilja að á sama tíma og sagt er þvert nei af hálfu samninganefndar ríkisins sé einum hópi opinberra starfsmanna afhentur samningur þar sem honum eru tryggð mánaðarlaun á bilinu 260--400 þús. kr. á mánuði.