Jóhannes Geir Sigurgeirsson
:
Virðulegi forseti. Ég verð því miður að segja að ég hef ekki trú á því að núv. hæstv. ríkisstjórn hafi þann vilja sem til þarf til að taka á þessum málum. Ég held að þetta hafi verið ótímabær bjartsýni hjá síðasta ræðumanni. Ég vil minna á tvennt í þessu sambandi. Ég minni á að þegar hæstv. núv. forsrh. sóttist eftir kjöri sem þingmaður Reykvíkinga gerði hann það á þeim forsendum að Reykjavík vantaði öflugri málsvara á Alþingi. Þetta gerðist á sama tíma og hann sem borgarstjóri var að gera Reykjavíkurborg í stakk búna til að taka við tugum þúsunda nýrra íbúa fram yfir aldamót þannig að ég held að það sýni kannski þann hug sem þar liggur raunverulega að baki.
Í öðru lagi nefni ég að við getum talið upp hvert frv. núv. hæstv. ríkisstjórnar á eftir öðru sem ganga í þá átt að það er reiknað með aukinni miðstýringu og valdatilfærslu til stjórnkerfisins í höfuðborginni. Þar nefni ég bara eitt sem er nýlegt frv. um málefni fatlaðra. Þetta er sá raunveruleiki sem blasir við okkur.