Fyrirspyrjandi (Kristín Ástgeirsdóttir)
:
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir svörin. Hér er að mínum dómi um mjög stórt mál að ræða. Við erum að tala um gífurlegar fjárfestingar af hálfu ríkisins, bæði fjárfestingar fortíðar, nútíðar og framtíðar. Að mínum dómi snýst þetta mál ekki síst um að tryggja að menningarstofnanir búi við gott húsnæði og að vinnustaðir séu viðunandi og allt sé þetta okkur til sóma.
Á hinn bóginn snýst málið um það að hér ríki einhver samræming á þessu sviði, að einhvers staðar sé yfirsýn yfir opinberar byggingar og ástand þeirra. Eins og fram kom í svari forsrh. er það á margra höndum og auðvitað er það hlutverk stjórnenda viðkomandi stofnana að sjá til þess að allt sé það með eðlilegum hætti og að viðhaldi sé sinnt jafnt og þétt. Ég held að þarna sé líka um það að ræða að breyta viðhorfum. Ég held að viðhorfin til viðhalds séu með einhverjum einkennilegum hætti hér á landi þannig að menn láta hlutina drabbast niður, fresta öllu fram á síðustu stundu sem veldur því að kostnaðurinn verður mun meiri en þyrfti að vera. Ég vil því skora á hæstv. forsrh. að huga að heildaryfirsýn í þessum málum, hvort sem hún á að vera í höndum embættis húsameistara ríkisins, sem ég vil nú reyndar breyta, eins og hér kom fram áðan, eða hvort einhvers staðar annars staðar má koma fyrir heildarsýn sem ég tel vera mjög nauðsynlega.