Norræna ráðherranefndin 1991--1992

111. fundur
Fimmtudaginn 26. mars 1992, kl. 13:30:00 (4814)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti vill geta þess strax að undir 4. dagskrárlið eru a-, b- og c-liðir. 3. mgr. 63. gr. þingskapalaga um meðferð umræðna mun verða notuð undir þessum dagskrárlið, þ.e. fluttar verða framsögur um þessar þrjár skýrslur og síðan verða umræðurnar í einu lagi ef ekki koma fram athugasemdir um það.