Ólafur Ragnar Grímsson
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Þessi ræða hæstv. utanrrh. staðfesti eins og skýrslan sem hann lagði fram í gær að hann boðar stefnubreytingu af hálfu íslensku ríkisstjórnarinnar. Í ræðunni sem hann flutti hér voru sömu rök og Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambandsins, flutti fyrir nokkru síðan að Íslendingar ættu að máta flíkina, þ.e. máta aðild að EB, og þá fyrst þegar menn væru búnir að máta flíkina væri hægt að taka afstöðu til þess hvort menn vildu kaupa hana. Forsrh. Davíð Oddsson hafnaði þessari skoðun Þórarins V. Þórarinssonar. Hingað til hafa allir stjórnmálaflokkar á Íslandi verið þeirrar skoðunar að aðild að Evrópubandalaginu kæmi ekki til greina. Við höfum lesið Rómarsáttmálann, við höfum lesið Maastricht-samkomulagið, við þurfum ekki að kanna þetta neitt. En nú segir hæstv. utanrrh.: Þá fyrst þegar búið er að kanna í öllu Stjórnarráðinu alls konar hluti, þá er hægt að hafna. Hann treystir sér ekki til að hafna hér og nú aðild Íslands að Evrópubandalaginu heldur vill eins og Þórarinn V. Þórarinsson fara í það að máta flíkina. Þetta er afgerandi stefnubreyting, hæstv. utanrrh., vegna þess að forsrh. Davíð Oddsson, eins og ég rakti hér áðan, daginn sem ríkisstjórnin var mynduð og ætíð síðan, síðast í Helsinki fyrir tveimur vikum, lýsti því yfir að á meðan hans ríkisstjórn væri við völd yrði aðild Íslands að Evrópubandalaginu ekki tekin á dagskrá. Ekki tekin á dagskrá, ekki til umfjöllunar innan Stjórnarráðsins. En nú er gerð krafa af hæstv. utanrrh. um að slík umfjöllun um aðild Íslands að Evrópubandalaginu fari fram.
Ég segi þess vegna alveg skýrt, Alþb. hefur kynnt sér Rómarsáttmálann, við höfum kynnt okkur Maastricht-samkomulagið, við vitum hvað felst í því miðstýrða ríki sem verið er að mynda í Evrópu. Og við þurfum ekkert að kanna það hvort Ísland á að afsala sjálfstæði sínu í hendur þessa miðstýrða nýja Evrópuríkis. Svar okkar er alveg skýrt hér og nú: Nei.