Ólafur Ragnar Grímsson
(um þingsköp)
:
Virðulegi forseti. Mér finnst mjög leitt að þurfa að koma hér upp aftur en ekki gætti nú mikillar sanngirni eða réttsýni í málflutningi hæstv. utanrrh. hér áðan undir liðnum þingsköp. Ég vil segja við hann, og reyndar aðra sem hér hafa talað, að það er auðvitað mjög algengt hér í þinginu að menn víki að málum í stærra samhengi en það mál sem er á dagskrá. Ég nefni t.d. að hér hafa á mörgum undanförnum þingum verið skattafrumvörp til umræðu, t.d. skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði, og það frv. hefur verið tilefni ítarlegra og víðtækra umræðna um efnahagsmál. Ég minnist þess ekki að forsetar hafi þá sagt að menn ættu bara að halda sig við skattinn á verslunar- og skrifstofuhúsnæði. Ég held t.d. að hv. þm. Jón Baldvin Hannibalsson hafi á stjórnarandstöðuárum sínum haldið mjög langar ræður um efnahagsmál undir ýmiss konar dagskrárliðum og fór vítt um völl með miklum glæsibrag og reið fáki fráum hér um þingsalinn fram og aftur án þess að forsetar segðu honum að nú ætti hann ætti bara að tala um skatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði og allt annað sem hann viki að væri bara ekki í réttum stíl. Þess vegna var það auðvitað fullkomlega eðlilegt að víkja aðeins að þessu máli hér í dag. Það hefði verið fullkomlega óeðlilegt að gera það ekki. Það er allt fjölmiðlakerfi landsins yfirfullt af þessu umræðuefni. Þetta er fyrsta frétt fjölmiðlanna, yfirlýsing utanrrh. Eða er það kannski þannig, hæstv. utanrrh., að það hafi allir enn á ný alltaf rangt fyrir sér nema hæstv. ráðherra? Það sé misskilningur hjá fjölmiðlakerfinu að þetta sé stefnubreyting eða einhver tíðindi? ( Forseti: Þingsköp.) Já, ég er að koma að því, virðulegi forseti, að sýna fram á það að sá málflutningur sem hæstv. utanrrh. var hér með, að það væri brot á þingsköpum að ræða um skýrslu hæstv. utanrrh. í tengslum við samninginn um EFTA og Tyrkland er auðvitað fullkomlega út í hött. Það er í samræmi við venju sem tíðkast hefur í þinginu um langt árabil. Ef menn ætla hins vegar að fara að túlka það þannig, sem er algjör nýjung í þinginu, að menn eigi eingöngu að tala þröngt um það efni sem er á dagskrá, þá munu menn auðvitað beygja sig undir það, en þá væru ærið margar ræður sem margir núv. hæstv. ráðherrar í ríkisstjórn hafa flutt hér á undanförnum árum nokkuð sérkennilegar.