Friðun Landnáms Ingólfs fyrir lausagöngu búfjár

112. fundur
Föstudaginn 27. mars 1992, kl. 14:14:00 (4872)

     Flm. (Rannveig Guðmundsdóttir) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég tek líka undir það að þetta er kjarni málsins, en einmitt á því svæði sem hér er til umræðu erum við að reyna að nálgast þá staðreynd hvort eðlilegt sé að girða af vegina sem slíka í þéttbýlasta svæði landsins þar sem 2 / 3 þjóðarinnar búa eða hvort leita eigi annarra lausna í þessu vandamáli. Einn kjarni tillögunnar.