Frumvarp um Lánasjóð íslenskra námsmanna

114. fundur
Þriðjudaginn 31. mars 1992, kl. 13:51:00 (4909)

     Sigríður A. Þórðardóttir :
    Virðulegi forseti. Formaður menntmn. hefur lagt áherslu á að kynna breytingartillögur um Lánasjóð ísl. námsmanna í menntmn. áður en aðrir fengju að sjá þær, þar með taldir fjölmiðlar. Ég hef ítrekað neitað fjölmiðlum um upplýsingar um þessi mál og ég hef brýnt það sama fyrir samstarfsmönnum mínum.
    Heimildarmaður blaðsins hefur aðgang að upplýsingum um málið sem aðstoðarmaður ráðherra. Ég harma að þessi fréttaflutningur hefur átt sér stað og lýsi því yfir að heimildarmaður er einn ábyrgur fyrir honum.