Hjörleifur Guttormsson
(andsvar)
:
Virðulegur forseti. Það er rétt sem hæstv. utanrrh. sagði að ég hef frá upphafi varað við þeirri siglingu sem hann hefur verið kapteinninn á og stýrt undanfarin þrjú ár vegna þess að ég hef óttast það að sú stund rynni upp sem nú er komin. En ég hef ekki sett samasemmerki og hef aldrei gert það milli samnings um Evrópskt efnahagssvæði og aðildar Íslands að Evrópubandalaginu og afstaða mín í þeim efnum er alveg skýr. Ef velja á milli tveggja slæmra kosta, þá er auðvitað bláa bókin sem liggur nú á borðum þingmanna illskárri kostur en aðild að Evrópubandalaginu og það svo miklu munar. En það hefur bara ekki verið í hugum þeirra sem ráðið hafa þessari för að stöðva þar af siglinguna heldur að halda í næstu stöð. Hvað felst í orðum ráðherra sem segir á Alþingi að það sé metnaðarlítil þjóð sem láti staðar numið við samning um Evrópskt efnahagssvæði? Að lítill metnaður sé í því fólginn fyrir þjóð að ætla að sitja í bandalagi eins og Evrópsku efnahagssvæði án þess að fá nokkru um ráðið siglinguna? Það er m.a. af þeim sökum sem ég hef varað við þeim samningi um EES. En að láta sér til hugar koma að bjóða íslenskri þjóð að afsala sér sjálfræði og sjálfstæði og halda inn í stórveldi Vestur-Evrópu, Evrópubandalagið, umbreytt í Evrópusamveldi sem samningarnir í Maastricht vísa á. Það er kveðja sem ég vonaði að kæmi ekki, jafnvel ekki frá hæstv. utanrrh.