Utanríkismál

114. fundur
Þriðjudaginn 31. mars 1992, kl. 21:28:00 (4930)

     Ólafur Ragnar Grímsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Málið er mjög einfalt, hæstv. utanrrh. Er hæstv. utanrrh. sammála eða ósammála hv. þm. Karli Steinari Guðnasyni? Ég bið hæstv. utanrrh. að svara því með já-i eða nei-i. Er hæstv. utanrrh. sammála hv. þm. Karli Steinari Guðnasyni að Íslendingar eigi að leggja fram umsókn um aðild að EB fyrir áramót? Við skulum alveg sleppa öllum dómum um það hvort ég er með ofmæli eða ekki. Við skulum bara fá það á hreint. Er utanrrh. og formaður Alþfl. sammála Karli Steinari Guðnasyni eða ekki? Já eða nei? Ég bið hæstv. utanrrh. að koma upp og mæla annað hvort orðið.