Ólafur Ragnar Grímsson
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Hæstv. forsrh. flutti hér mjög athyglisverða ræðu. Hann var vissulega í miklum vanda vegna þess að utanrrh. ríkisstjórnar hans, formaður samstarfsflokksins í ríkisstjórninni, hafði lýst mjög afdráttarlausum skoðunum í skýrslu sinni og hér fyrr í dag í ræðu. Ég tel að hæstv. forsrh. hafi í ítarlegri umfjöllun sinni staðfest þær fyrri yfirlýsingar sem hann var búinn að gefa um afstöðu ríkisstjórnarinnar frá 16. maí í fyrra og til og með 17. mars í þessum mánuði, að aðild að Evrópubandalaginu væri ekki á dagskrá ríkisstjórnarinnar og eins og hæstv. forsrh. sagði, ekkert hefði komið fram síðustu daga eða vikur sem knýði á um það að slík aðild væri tekin á dagskrá sem viðfangsefni. Hæstv. forsrh. sagði skýrt að ekkert samhengi væri á milli þess sem aðrar EFTA-þjóðir væru að gera og þess sem Íslendingar þyrftu að gera. Eins og við vitum var það meginstoðin í kenningu hæstv. utanrrh. að vegna þess að aðrar EFTA-þjóðir væru að sækja um aðild að Evrópubandalaginu þyrfti íslenska Stjórnarráðið nú að taka það til meðferðar.
Hæstv. forsrh. ítrekaði hvað eftir annað að ekkert hefði breyst frá fyrri yfirlýsingum sínum. Þær voru tíundaðar rækilega hér í dag og ég tel að þær standi þess vegna áfram. Ég vil þess vegna þakka hæstv. forsrh. fyrir þessar yfirlýsingar. Ég tel þær vera eins skýrar og hægt var að búast við í ljósi hinnar erfiðu stöðu sem hann var í vegna samvinnunnar við hæstv. utanrrh. Ég veit að sumir eru kannski undrandi á því að ég skuli kjósa að túlka ræðuna með þessum hætti vegna þess að ýmsir kynnu að falla í þá freistni að vilja frekar spyrða hæstv. forsrh. saman við hæstv. utanrrh. Ég tel málið hins vegar vera svo stórt að menn geti ekki leyft sér slíkt. Ég vil þakka hæstv. forsrh. fyrir að hafa staðfest hér fyrri yfirlýsingar sínar um það hver sé stefna hæstv. ríkisstjórnar.