Utanríkismál

114. fundur
Þriðjudaginn 31. mars 1992, kl. 23:13:00 (4945)

     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Í rauninni er það sem hv. þm. nefndi gamall ágreiningur ef hún hefur það sjónarmið að um leið og sótt er um aðild að EES séu menn að sækja um aðild að Evrópubandalaginu. Í þeim efnum þurfti ég ekki að gefa neina sérstaka yfirlýsingu hér í kvöld. Það er þá ágreiningur sem staðið hefur yfir í um þrjú ár.