Varamaður tekur þingsæti

115. fundur
Miðvikudaginn 01. apríl 1992, kl. 13:30:00 (4956)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Borist hefur svohljóðandi bréf, dags. 31. mars 1992:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur, leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska eftir því að 1. varamaður Alþb. í Reykjaneskjördæmi, Sigríður Jóhannesdóttir kennari, Keflavík, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Ólafur Ragnar Grímsson, 8. þm. Reykn.``


    Kjörbréf Sigríðar Jóhannesdóttur hefur verið rannsakað og samþykkt. Hún hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því skv. 2. gr. þingskapa að vinna drengskaparheit að stjórnarskránni.