Kristín Einarsdóttir
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Heimssýn hv. þm. og það sem hann sagði kom mér kannski ekki mjög á óvart því að hún hefur ekkert breyst um nokkurra ára skeið, a.m.k. frá því að ég byrjaði að lesa greinar eftir hann í Morgunblaðinu. En það sem ég ætlaði aðallega að gera athugasemdir við varðandi fullyrðingar hans var um vaxandi andstöðu fólks á Norðurlöndum við inngöngu landanna í EB og ég hlýt að spyrja hann hvort hann hafi ekki fylgst með umfjöllun í dagblöðum frá Norðurlöndum. Skoðanakannanir hafa t.d. sýnt mjög greinilega að almenningur er í vaxandi mæli að gerast andsnúinn samningunum, bæði samningnum um EES en þó sérstaklega að löndin gerist aðilar að EB. Í Danmörku er mjög mikil og vaxandi andstaða við að Danir samþykki Maastricht-samkomulagið. Hv. þm. hlýtur að vita þetta. Mér fannst þingmaðurinn einnig gera mjög lítið úr almenningi. Það er eins og skoðun almennings skipti engu máli og fólk ætti ekki að vera að skipta sér af því hvað ríkisstjórnir ákveða og hann talaði mjög neikvætt um það. Mér þykir það furðuleg skoðun að almenningur eigi ekki skipta neinu máli.
Það er alveg rétt sem hann segir að ríkisstjórnir landanna hafa tekið ákvarðanir, t.d. í Svíþjóð og í Finnlandi. Þingin hafa verið meira tvístígandi en þau hafa hins vegar líka að meiri hluta að því er virðist enn sem komið er talið aðild æskilega, en almenningur hefur verið hins vegar hikandi og það skiptir auðvitað mjög miklu máli.