Tómas Ingi Olrich
(andsvar)
:
Ég vil taka það fram að það er ómaklegt af mér að gera þær kröfur til hv. 2. þm. Austurl. að hann svari fyrir gjörðir sinna flokksbræðra í Norðurl. e. En ég vil aðeins undirstrika það að allt sem ég hef sagt hér um þá kosningabaráttu stendur. Þar var því haldið fram að á vordögum 1991, fyrir kosningar, hefðu verið sett lög sem tryggðu Íslendingum réttindi til landakaupa umfram aðrar þjóðir, á sama tíma og þessi lög höfðu einmitt opnað þetta fyrir útlendingum og juku rétt þeirra í staðinn fyrir að þrengja hann, minnkuðu rétt íslenskra ríkisborgara. Og ástæðan fyrir því að lagafrv. hefur verið sett fram nú um þessi mál --- af Framsfl. --- er einmitt sú að þessi löggjöf hafði ekki verið sett.
Ég ætla ekki að deila um þetta við hv. 2. þm. Austurl. Ég tek þessa ræðu upp við þingmenn Framsfl. í Norðurl. e. vegna þess að þeir eiga það skilið að ég ræði þessi mál við þá. Það er óhjákvæmilegt vegna þess að ég tel að þetta hafi verið óheiðarleiki í málflutningi sem ekki gengur, satt best að segja. En ég ætla ekki að taka þessar viðræður upp við hv. 2. þm. Austurl. þó að ég skilji vel að hann vilji verja flokksbræður sína.