Fjöldi leiguliða og fullvirðisréttur

116. fundur
Fimmtudaginn 02. apríl 1992, kl. 10:42:00 (5005)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Hv. 4. þm. Norðurl. e. getur ekki tekið oftar til máls í þessu máli. ( SJS: Athugasemd.) Það er ekki hægt. ( SJS: Um þingsköp þá.) Hv. 4. þm. Norðurl. e. kveður sér hljóðs um gæslu þingskapa en forseti vill benda á að í fyrirspurnatímum hafa þingmenn leyfi til þess að tala tvisvar og ráðherra tvisvar og ekki er gert ráð fyrir að þeir komi með athugasemdir umfram það.