Fiskistofa

117. fundur
Fimmtudaginn 02. apríl 1992, kl. 17:48:00 (5098)

     Kristín Einarsdóttir (um þingsköp) :
    Virðulegur forseti. Ég lít svo á að þetta séu gild rök fyrir því að þetta skuli rætt saman og ekki vil ég koma í veg fyrir það að þessi mál verði tekin öll á dagskrá og rædd núna og geti öll komist til sjútvn. Ég er alveg sammála því. Ég tel það mjög mikilvægt og mun þar af leiðandi einungis gera athugasemd en ekki andmæla og ég vil endurtaka það að ég lít á þetta sem algera undantekningu.