Samkeppnislög

119. fundur
Mánudaginn 06. apríl 1992, kl. 13:44:05 (5167)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Eins og fram kemur á dagskránni er 10. málið, samkeppnislög, stjfrv., of seint fram komið. Vegna óvæntra tafa kom frv. degi síðar en áskilið er skv. 2. mgr. 36. gr. þingskapa. Frv. verður þess vegna því aðeins tekið til meðferðar að þingið samþykki það og vill forseti leita atkvæða um hvort leyft skuli að taka þetta mál til meðferðar.