Guðrún Helgadóttir (um atkvæðagreiðslu) :
Forseti. Er ekki eðlilegra að efh.- og viðskn. eða fjárln. fengi þetta mál en landbn.? ( Forseti: Það er tillaga um að vísa þessu frv. til hv. landbn., það er tillaga flm. og forseti gerir ekki athugasemd við þá tillögu. Það er að því er forseti veit best venjan með slík mál að vísa þeim til landbn. Hv. 1. flm. er fyrrv. landbrh. svo að hann væntanlega veit hvað hann er að gera. Því verður tillaga hv. 1. flm. borin upp, um að vísa málinu til hv. landbn.)
Hæstv. forseti. Ég vil vekja athygli á því að almennt þarf heimild 6. gr. fjárlaga til þess að selja eigur ríkisins og ég sé ekki betur en hér sé um að ræða breytingu á fjárlögum ársins. Ég held að það hljóti að þurfa að fara fyrir hv. fjárln. hvort frekari heimildir verði veittar. En ég skal ekki gera mikið mál út af þessu en ég mundi óska þess að einhver mér fróðari sannfærði mig um eitthvað annað. En almennt er það fjárln. Alþingis sem veitir heimild til sölu ríkiseigna. ( Forseti: Það er landbn. sem hefur með jarðeignir ríkisins að gera.)