Kristín Ástgeirsdóttir
(andsvar)
:
Hæstv. forseti. Það er auðvitað rétt hjá ráðherranum að töluverð fræðsla á sér stað, sem betur fer, en það sem ég var að leggja mesta áherslu á í mínu máli var að það er mjög nauðsynlegt að fólk þekki þessa sjúkdóma sem eru nánast horfnir eða alveg horfnir. Mönnum hættir til að afskrifa sjúkdóma eins og berkla og segja að þeim hafi verið útrýmt á Íslandi, en þeir geta stungið upp kolli. Eins og ég nefndi áður eru ýmsir þessir sjúkdómar landlægir í þriðja heiminum og ferðalög aukast jafnt og þétt þannig að það er mjög mikilvægt að allur almenningur sé vakandi fyrir og þekki þessa sjúkdóma sem fyrir allnokkru lögðu fjölda Íslendinga í gröfina.