Sóttvarnalög

124. fundur
Föstudaginn 10. apríl 1992, kl. 14:28:00 (5442)

     Guðrún Helgadóttir (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Aðeins til að minna hæstv. ráðherra á að hann hefur ekki skrifað allt hjá sér sem spurt var um. Mér fannst ég ekki fá svör við spurningu minni um brottnám beklavarnalaga né heldur hvort meiningin er að gildistaka verði sú sem hér er gert ráð fyrir og í þriðja lagi, samkvæmt hvaða lögum almennar bólusetningar barna eru eða hvort þær eru samkvæmt einhverjum lögum og hvort ástæða væri til að taka það inn í þetta frv.