Barnalög

125. fundur
Mánudaginn 13. apríl 1992, kl. 22:06:00 (5510)


     Svavar Gestsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hv. 3. þm. Reykv. fyrir þessar ábendingar og mun að sjálfsögðu kynna mér þær umsagnir sem hann vísaði til. Ég játa það að ég hef ekki heyrt enn þá nægilega gild rök í málinu til að láta sannfærast. Auðvitað áskil ég mér allan rétt til þess. En mér finnst að hverjum einasta þingmanni sé skylt að taka afstöðu í svona málum með mjög vönduðum rökstuddum hætti. Ég segi alveg eins og er að efasemdirnar eru margar í mínum huga eins og sakir standa.