Lánasjóður íslenskra námsmanna

127. fundur
Mánudaginn 27. apríl 1992, kl. 13:55:05 (5611)

     Frsm. meiri hluta menntmn. (Sigríður A. Þórðardóttir) (um þingsköp) :
    Herra forseti. Starfsmaður þingsins kom að máli við mig rétt í þessu og tjáði mér að bráðabirgðaniðurstöður í þessu efni væru komnar. Verið er að ljósrita þær niðurstöður og þær munu liggja hér á borðum nefndarmanna í menntmn. mjög fljótlega.