Lánasjóður íslenskra námsmanna

127. fundur
Mánudaginn 27. apríl 1992, kl. 15:49:41 (5619)



     Kristín Ástgeirsdóttir (andsvar) :
    Herra forseti. Vextir og lántökugjöld munu ekki skila sér inn í sjóðinn fyrr en eftir þó nokkur ár, það má vera ljóst. En hvað varðar breyttar úthlutunarreglur vitum við að sjálfsögðu ekkert um það hér hvaða stefna verður þar tekin upp og að sjálfsögðu er eðlilegt að samdar verði nýjar reglur með breyttum lögum. En það er þá ljóst og fram komið sem ég var að fiska eftir að það er auðvitað ætlunin með þessum breytingum að draga verulega úr lánveitingum sjóðsins, það er auðvitað tilgangurinn. Og hvað er þá orðið um jafnrétti til náms?