Frumvörp um Sementsverksmiðju ríkisins og Síldarverksmiðjur ríkisins

129. fundur
Miðvikudaginn 29. apríl 1992, kl. 14:19:45 (5665)


     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Forseti verður að gefnu tilefni að fara fram á að fjallað verði um þingsköp þegar óskað er eftir því að fjallað verði um þingsköp. Hér fara ekki fram utandagskrárumræður um kjaramál heldur fara hér fram umræður um þingsköp og ég verð að ítreka beiðni mína um það að hv. þm. fjalli um þingsköp. Til máls tekur hv. 8. þm. Reykn. og óskar að bera af sér sakir.