Ólafur Ragnar Grímsson :
Virðulegi forseti. Ég var nokkuð undrandi á ræðu hæstv. fjmrh. hér áðan og sé satt að segja ekki hvaða ástæðu hann sér til þess að fara að blanda almennum pólitískum umræðum um þessa kjarasamninga við afstöðu einstakra flokka til þeirra inn í þessa umræðu hér. En vegna þess að hann kaus að gera það, þá tel ég óhjákvæmilegt að segja eftirfarandi.
Hæstv. fjmrh. er samningsaðili kjarasamninganna. Þótt hann hafi ekki sjálfur skrifað undir samninginn, að því er mér hefur verið tjáð, er skrifað undir samninginn í hans umboði þannig að samninganefnd ríkisins undir forustu Ágústs Einarssonar skrifar undir fyrir hönd fjmrh. Hér hefur það þess vegna gerst að annar samningsaðilinn í samningum ríkisins og BSRB og Kennarasambandsins er að lýsa í ræðustól á Alþingi sérstökum skilningi sínum á kjarasamningunum. Hæstv. fjmrh. lýsir því yfir að þótt sá texti, sem snertir þetta mál og hv. þm. Össur Skarphéðinsson las upp í iðnn. í morgun og hefur lýst því yfir hér í þinginu að hann hafi gengið út frá í morgun á nefndarfundi að væri gildur, hafi verið tekinn út úr yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar að ósk BSRB og Kennarasambands Íslands sé það marklaus aðgerð, skipti engu máli efnislega.
Það er satt að segja afar óvenjulegt að samningsaðili formlegra kjarasamninga, sem
nú á að fara að greiða atkvæði um í öllum aðildarfélögum BSRB sem eiga aðild að þessum samningi og í Kennarasambandinu, lýsi yfir skilningi af þessu tagi. Þess vegna er það alveg óhjákvæmilegt að það komi fram strax í dag á fundi iðnn. og sjútvn. þar sem forustumenn BSRB og Kennarasambands Íslands komi hvort þeir séu sammála þessari lýsingu hæstv. fjmrh. á því hvert sé eðli þess að taka þetta ákvæði út úr textanum. Ef þeir eru ekki sammála þessari yfirlýsingu hæstv. fjmrh. þá liggur það alveg ljóst fyrir að hæstv. fjmrh. er að byrja þá göngu sína að brjóta gegn skilningi samningsaðila. Og hann gerir það ekki bara sem fjmrh., hann gerir það sem sá aðili sem gerir kjarasamninga því að það er enginn annar sem gerir kjarasamninginn af hálfu ríkisins en hæstv. fjmrh.
Nú eru að hefjast atkvæðagreiðslur í aðildarfélögum BSRB og Kennarasambands Íslands um þennan samning og það er þess vegna alveg óhjákvæmilegt að þegar í dag verði haldnir fundir í þessum tveimur þingnefndum þar sem forusta BSRB og forusta Kennarasambandsins og hæstv. fjmrh. sjálfur komi til fundar til þess að ræða þetta mál því það er ekki hægt að líða það t.d. að hæstv. fjmrh. tali gegnum milliliði í þessu máli. Það er ekki gilt að þegar hann hefur lýst hér á Alþingi ákveðnum skilningi á kjarasamningnum, þá sendi hann undirmenn sína til fundar við þingnefndina til þess að lýsa einhverju öðru. Fyrst æðsti handhafi samninganefndar ríkisins hefur kosið að blanda sér inn í málið nú í fyrsta sinn með þeim hætti sem hæstv. fjmrh. gerði hér í dag þá verður hann að hafa manndóm til þess að fylgja málinu eftir. Ég vil þess vegna, virðulegi forseti, í ljósi þessarar yfirlýsingar hæstv. fjmrh. ítreka þá ósk sem fram hefur komið og láta í ljósi þá skoðun mína að ég tel óhjákvæmilegt að þessir fundir nefndanna verði þegar í dag og forusta BSRB og Kennarasambandsins fái tækifæri til þess að skýra sinn skilning á vettvangi þingsins með þeim hætti.