Frumvörp um Sementsverksmiðju ríkisins og Síldarverksmiðjur ríkisins

129. fundur
Miðvikudaginn 29. apríl 1992, kl. 14:35:00 (5670)

     Svavar Gestsson :
    Virðulegi forseti. Ég vek athygli á því að fyrir nokkrum mínútum gafst fjmrh. kostur á því að eyða óvissu í þeim viðkvæmu málum sem rædd hafa verið um klukkustundar skeið. Hann kaus að gera það ekki. Það sýnir vel hug hans og alvöru í þeirri stöðu sem nú er í kjaramálum opinberra starfsmanna.