Lánasjóður íslenskra námsmanna

129. fundur
Miðvikudaginn 29. apríl 1992, kl. 22:31:20 (5689)



     Jón Kristjánsson (andsvar) :
    Herra forseti. Mér dettur ekki í hug annað en viðurkenna það að ýmislegt hefur verið lagað í frv. Fyrr mátti nú vera ef frv. hefði verið haldið til streitu eins og það var. En ég efast um að það hafi verið góðmennska hv. stjórnarliða sem kom yfir þá allt í einu. Þeir fundu náttúrlega fyrir þeirri andstöðu sem var úti í þjóðfélaginu og þess vegna löguðu þeir frv. Það er hræðsla við viðbrögð þjóðfélagsins sem gerði það að frv. var lagað. En það er ómögulegt enn þá þrátt fyrir það.