Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
Virðulegi forseti. Vegna orða hv. 9. þm. Reykv. tók ég fram í svari mínu áðan að þessi nefnd var sett á laggirnar af ríkisstjórninni 1989, sjálfsagt með fullu samþykki þáv. hæstv. menntmrh., og til verksins hefur síðan verið veitt upphæð á fjárlögum. Ég býst við að hæstv. þáv. menntmrh. hafi þekkt vel til þess. Þegar ég kem að málinu eru þessar tillögur sem sagt allar formaðar og mótaðar hvað þetta snertir. Ég skal ekki dæma um frumleikann en ég tel þó að þetta séu mjög mikilvæg verk sem þarna hefur verið ákveðið að ráðast í. Þetta eru ekki verk sem munu vera fyrirferðarmikil að ytra byrði um langa hríð en þau geta þó haft enn þá meiri þýðingu. Ég tel að þetta hljóti að vekja athygli þar sem ég hef verið sakaður um að standa fyrir hlutum sem séu meira burðarvirki utan frá séð en þarna er um að ræða. Ég tel hins vegar að þær ábendingar sem hv. þm. og hv. fyrirspyrjandi komu með falli vel að því sem ég nefndi um framtíðarstefnumótun nefndarinnar og sjálfsagt er að hafa þær ábendingar í huga.
Þúsund ára afmæli kristnitöku á Íslandi
130. fundur
Fimmtudaginn 30. apríl 1992, kl. 11:48:47 (5739)