Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal)
:
Herra forseti. 18. janúar 1917 voru sett lög um bann við sölu og leigu skipa úr landi og samkvæmt alþingistíðindum 1916--1917 voru ástæður fyrir því þessar, með leyfi hæstv. forseta:
,,Með því að nú er hvarvetna mikil eftirspurn eftir skipum, bæði vöruflutningaskipum og öðrum, en landið má alls eigi við því, að skipastóll þess sje skertur, eins og nú stendur á, þykir full nauðsyn vera á að reisa sem allra fyrst skorður við sölu skipa út úr landinu.``
Þetta var á tímum fyrri heimsstyrjaldarinnar sem er, eins og þingheimur veit, löngu afstaðin. Af þeim sökum þykir rétt að leggja til að þessi lög séu úr gildi numin og legg ég til að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. samgn.