Kristín Ástgeirsdóttir :
Herra forseti. Ég vil í örfáum orðum gera grein fyrir því hvers vegna ég skrifaði undir þetta frv. með fyrirvara. Sá fyrirvari lýtur að því að ég er ekki alveg sannfærð um að rétt sé að opna sóttvarnastöðvar með þeim hætti sem hér er gert ráð fyrir, þ.e. með því að heimila að dýralæknir gegni öðrum störfum. Ég hef líka efasemdir hvað það varðar að með þessu verður heimilt að sæðingamenn komi inn í stöðvarnar og sinni þar störfum auk þess sem ég hef líka vissar efasemdir varðandi það að það kunni e.t.v. að hamla vísindastörfum viðkomandi dýralæknis eða rannsóknum sem tengjast þessum störfum að dýralæknir geti verið í öðru starfi samhliða. En þetta eru auðvitað vangaveltur og ekki hlutir sem skipta meginmáli þegar horft er á þessi lög í heild og því verður reynslan að skera úr um hvernig úr þessu vinnst.