Fullvinnsla botnfiskafla um borð í veiðiskipum

132. fundur
Mánudaginn 04. maí 1992, kl. 15:20:40 (5835)


     Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar) :
    Frú forseti. Varðandi fyrirspurn um skýrslubeiðni sem fram kom frá nokkrum þingmönnum Alþb. þá er því til að svara að ég er tilbúinn til þeirrar umræðu þegar ráðrúm er fyrir á dagskrá þingsins. Ég tel ekki óeðlilegt að málið hafi til að mynda átt að koma fyrr til umræðu á þinginu enda lagt fram miklu fyrr. En eðli máls samkvæmt þá er ég tilbúinn til þeirrar umræðu þegar aðstaða er til að taka það á dagskrá.