Verðjöfnunarsjóður sjávarútvegsins

132. fundur
Mánudaginn 04. maí 1992, kl. 15:22:00 (5836)

     Frsm. sjútvn. (Matthías Bjarnason) :
    Virðulegi forseti. Nefndin hefur fjallað um þetta mál. Umsagnir bárust frá Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, Íslenskum sjávarafurðum, Landssambandi smábátaeigenda, Landssambandi íslenskra útvegsmanna, Samtökum fiskvinnslustöðva, Sjómannasambandi Íslands og Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna.
    Í ljósi þeirra umsagna sem borist hafa til nefndarinnar og hún hefur fjallað um, er það samhljóða álit hennar að réttast sé að vísa málinu til ríkisstjórnarinnar í trausti þess að þar verði tekin ákvörðun um framtíð Verðjöfnunarsjóðs. Nefndin leggur því til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
    Árni R. Árnason var fjarstaddur afgreiðslu málsins. Jóna Valgerður Kristjánsdóttir sat fund nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi þegar málið var afgreitt og er samþykk áliti þessu.
    Undir álitið rita Matthías Bjarnason, Stefán Guðmundsson, Magnús Jónsson, Halldór Ásgrímsson, Jóhann Ársælsson, Steingrímur J. Sigfússon, Guðmundur Hallvarðsson og Vilhjálmur Egilsson.