Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson) :
Hæstv. forseti. Í fjárlögum yfirstandandi árs er skýrt kveðið á um þá stefnu ríkisstjórnarinnar að leggja niður Bókaútgáfu Menningarsjóðs. Í 6. gr. fjárlaga er heimild til fjmrh. að semja um ráðstöfun eigna
og skulda Menningarsjóðs eins og hv. þm. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir lýsti áðan.
Í greinargerð með fjárlagafrv. fyrir 1992 segir um Menningarsjóð:
,,Menntamálaráðuneytið hefur í hyggju að endurskoða lög um sjóðinn og endurmeta starfsemi hans þar sem m.a. yrði stefnt að því að leggja útgáfufyrirtækið niður á árinu 1992.``
10. okt. sl. skipaði ég starfshóp sem hefur það hlutverk í fyrsta lagi að endurskoða lög nr. 50/1957, um Menningarsjóð og menntamálaráð, og í öðru lagi að gera verkáætlun varðandi útgáfustarfsemi Menningarsjóðs er miði að því að hún verði lögð niður á árinu 1992 og að hefja framkvæmd í samráði við menntmrh.
Svo að ég svari spurningunni strax, þá er endurskoðun ekki lokið en starfshópurinn hefur það viðfangsefni m.a. Starfshópurinn hefur lagt fram verkáætlun sem miðar að því að ganga frá eignum og skuldum sjóðsins. Síðasta atriðið í verkáætluninni var að fella lög um Menningarsjóð úr gildi. Verkáætlun þessi hefur verið framkvæmd í samráði við menntmrn. eftir þeirri tímatöflu sem henni fylgdi.
Ástandið í fjármálum Menningarsjóðs hefur ekki verið uppörvandi. Á sl. tveim árum, 1990 og 1991, hafa verið greiddar rétt tæpar 30 millj. kr. úr ríkissjóði til Menningarsjóðs, þar af 10,5 millj. umfram fjárlagaheimildir. Á fjárlögum yfirstandandi árs eru 6 millj. kr. ætlaðar til starfseminnar. Sú upphæð var að sjálfsögðu við það miðuð að útgáfustarfsemi yrði hætt. Nýr meiri hluti í menntamálaráði breytir ekki þeirri ákvörðun, enda ekkert fé til að hefja starfsemi á ný.
Um kosningu fulltrúa í stað aðalmanns sem fellur frá eða segir af sér gilda ákveðnar reglur á hv. Alþingi. Um það hef ég svo sem ekkert að segja annað en það að þær eru ekki í samræmi við yfirlýsingar varafulltrúa Alþfl. í ráðinu eða lagaprófessorsins sem vitnað hefur verið til. Gagnrýnt hefur verið að ákvæði laganna um bókaútgáfu skyldu ekki fyrst felld brott. Sú gagnrýni er óréttmæt. Það verklag sem viðhaft hefur verið er eðlilegra m.a. með hliðsjón af því að tími gæfist til að finna störf fyrir núverandi starfsmenn sjóðsins.