Lífeyrissjóður sjómanna

132. fundur
Mánudaginn 04. maí 1992, kl. 19:44:48 (5872)

     Jón Kristjánsson (andsvar) :
    Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. fjmrh. fyrir góðar undirtektir um að fresta umræðunni. Í framsöguræðu hans og reyndar núna í seinni ræðu hæstv. ráðherra kom fram að þetta frv. er lagt fram að frumkvæði stjórnar sjóðsins. Hann leggur á það mikla áherslu. Það mundi auðvitað greiða fyrir umræðunni að hv. 16. þm. Reykv. upplýsti það fyrir hönd stéttarfélags síns hvernig hafi verið unnið að þessu máli í félagi hans og þess vegna þakka ég fyrir það að undirtektir hafa verið góðar við það að fresta umræðunni.