Fjárhagsstaða Náttúruverndarráðs

133. fundur
Þriðjudaginn 05. maí 1992, kl. 14:00:17 (5886)

     Umhverfisráðherra (Eiður Guðnason) :
    Virðulegi forseti. Ef hv. þm. Valgerður Sverrisdóttir heldur að þetta mál verði leyst með yfirlýsingu hér úr ræðustól þá er málið ekki svo einfalt og ég treysti mér ekki til á þessari stundu að gefa yfirlýsingar um það að alls staðar verði haldið uppi landvörslu þar sem Náttúruverndarráð telur það æskilegt. Því miður.