Samkeppnislög

133. fundur
Þriðjudaginn 05. maí 1992, kl. 16:21:14 (5912)


     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) (andsvar) :
    Herra forseti. Vegna andsvars hv. 9. þm. Reykv. tek ég það skýrt fram að ég tel það mjög eðlilega meðferð í þinginu að frv. Steingríms J. Sigfússonar og fleiri þingmanna um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti sem er á þskj. 625 verði til meðferðar samhliða frv. til nýrra samkeppnislaga, þar sem þar er að hluta fjallað um skyld efni og tek undir það með hv. 9. þm. Reykv. að það væri æskileg meðferð mála í þinginu.