Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
Það hafa sex hv. þm. óskað eftir að veita andsvar við ræðu hæstv. ráðherra. Andsvör mega standa að hámarki í 15 mínútur og þess vegna verður forseti að stytta ræðutíma, sem að hámarki má vera tvær mínútur fyrir hvern þingmann þannig að til að byrja með leyfir forseti aðeins eina mínútu í fyrra sinnið og hálfa mínútu í hið síðara ef þingmaðurinn eða ráðherrann tekur tvisvar til máls. Þannig verður reglan að vera til þess að allir fái að komast að.