Valgerður Sverrisdóttir (andsvar) :
Hæstv. forseti. Það er engan bilbug á hæstv. ráðherra að finna í þessu máli. Ég vil byrja á að mótmæla þeirri hugmyndafræði sem felst í útreikningum hæstv. ráðherra og hans manna á því hversu mikill hluti lána sé styrkur þegar hann talar um 67%. Þetta er svipað og það að við reiknuðum það út þegar börnin okkar flytja úr foreldrahúsi hvað þau séu búin að kosta okkur alveg frá því að þau fæddust, dag frá degi með vöxtum. Ég mótmæli þessum útreikningum.
Ég vil einnig vekja athygli á því að hæstv. ráðherra sagði í sínu máli að námsmenn þyrftu ekki að bera vaxtakostnað, þeir mundu fá hann bættan. Þeir mundu ekki þurfa að bera vaxtakostnað óbættan. Þýðir það, að námsmenn fái lán fyrir vöxtunum, að þeir fái hann bættan? Á að bæta enn meiri lánum við þau ótrúlega háu lán sem margur námsmaður hefur á bakinu þegar hann verður 67 ára eins og töflurnar sýna?