Kristinn H. Gunnarsson :
Virðulegi forseti. Þessi fsp. vekur upp tímabæra umræðu og ég vil þakka fyrir hana. Það hefur verið bent á það sem ég hugðist koma á framfæri að núv. fiskveiðistjórnun er að nokkru leyti hindrun í því að stór og öflug skip nýti þau tækifæri sem liggja til veiða utan 200 mílna fiskveiðilögsögu.
Ég vil taka undir áminningar hv. 4. þm. Reykv. til stjórnvalda að vinna betur að hagsmunamálum okkar á því svæði sem liggur fyrir utan 200 mílur og fylgja eftir samþykktum þings varðandi það.
Ég vil að lokum, virðulegi forseti, minna á þær hugmyndir sem við alþýðubandalagsmenn höfum lagt fram um aflagjald og hafa verið kynntar rækilega, bæði fyrir kosningar og síðar. Þær eru ákaflega vel framkvæmanlegar og munu að mínu viti stuðla að því að öll skip sæki afla þar sem hann er að fá og jafnvel út fyrir 200 mílna landhelgi.
En hvað varðar stefnu Alþfl. er ljóst að það aflagjald sem þeir eru að boða er ákaflega óljóst og þeir þurfa frekar að skýra það áður en menn geta tekið afstöðu til þess.