Náttúrufræðistofnun Íslands

136. fundur
Fimmtudaginn 07. maí 1992, kl. 17:38:39 (6097)



     Guðrún Helgadóttir (um þingsköp) :
    Hæstv. forseti. Það getur vel verið að málið sé afar einfalt fyrir nefndarmönnum sem hafa fjallað um það en það vildi þá kannski einhver nefndarmanna útskýra fyrir mér þá umræðu sem hefur farið fram um það hvaða rök hv. þm. hefur fyrir því að setrin verði tvö en ekki fimm o.s.frv. Einhver nefndarmanna hlýtur að geta rætt um hvað fram hefur farið í nefndinni um málið.