Ólafur Ragnar Grímsson
:
Virðulegi forseti. Munurinn á þeirri tillögu sem hér er verið að greiða atkvæði um og því orðalagi sem ríkisstjórnin setti fram í frv. er sá að í þessari tillögu er lagt til að markmið laganna sé að stuðla að jafnrétti til náms. Annar flokkur þessarar ríkisstjórnar kaus fyrir tveimur árum síðan að bæta orðunum Jafnaðarmannaflokkur Íslands við nafn sitt. Alþfl. hafði borið heitið Alþýðuflokkur frá stofnun sinni 1916 þar til fyrir tveimur árum síðan að hann kaus þetta viðhengi við nafn sitt. Í þessari atkvæðagreiðslu gefst þingmönnum Alþfl. tækifæri á því að sanna það að þetta viðhengi sé eitthvað annað en orðin tóm. Jafnaðarmannaflokkur sem er á móti jafnrétti til náms ætti að sjá sóma sinn í því á flokksþinginu í næsta mánuði að taka viðhengið aftur til baka. Það verður fróðleg prófraun fyrir hv. þm. Össur Skarphéðinsson, formann þingflokks Alþfl., og ýmsa aðra að greiða atkvæði um þessa tillögu. Við munum fylgjast með því, jafnaðarmenn um allt Ísland munu fylgjast með því og unga fólkið í landinu mun fylgjast með því. Ég segi já.