Lánasjóður íslenskra námsmanna

137. fundur
Föstudaginn 08. maí 1992, kl. 12:14:07 (6142)

     Halldór Ásgrímsson :
    Virðulegur forseti. Hér er um sjálfsagða brtt. að ræða en ég vil sérstaklega fagna hjásetu þingflokksformanns Alþfl. í þessari atkvæðagreiðslu og skil það sem skilaboð um það að þessu máli verði breytt milli 2. og 3. umr. Þó að ég treysti því nú ekki algjörlega þá vil ég sérstaklega fagna því. Ég segi að sjálfsögðu já við þessa atkvæðagreiðslu.