Lánasjóður íslenskra námsmanna

137. fundur
Föstudaginn 08. maí 1992, kl. 12:27:14 (6148)


     Valgerður Sverrisdóttir :
    Hæstv. forseti. Við framsóknarmenn erum andvígir því að leggja vexti á námslán. Með því að lán eru verðtryggð greiða námsmenn lánin sjálf til baka. Ávöxtun af því fjármagni sem veitt er úr ríkissjóði til lánasjóðsins endurgreiðist til landsmanna með þeim auði sem menntun er. Ég segi já.