Lánasjóður íslenskra námsmanna

137. fundur
Föstudaginn 08. maí 1992, kl. 13:02:00 (6159)


     Páll Pétursson :
    Frú forseti. Það er mjög óvenjulegt að leggjast gegn því að vísa frv. milli umræðna en hér er verið að keyra í gegnum Alþingi ákaflega slæmt frv. Það er vonlítið eða vonlaust að fá ríkisstjórnina til að lagfæra þetta frv. við 3. umr. Þeir námsmenn sem kusu ríkisstjórnarflokkana sl. vor geta sjálfum sér um kennt og þeirra er mikil ábyrgð að hleypa þessari ríkisstjórn til valda. Þetta frv. er miklu verra en gildandi lög, þetta frv. er þjóðfélaginu til tjóns. Ég leggst gegn afgreiðslu þessa frv. og ég segi nei.